RNH » Fréttir

Þráinn Eggertsson látinn
Þráinn Eggertsson, prófessor emeritus í hagfræði, lést í Reykjavík 18. júní 2026 85 ára að aldri. Í minningargrein um hann í Morgunblaðinu 29. júní sagði Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, að sumir háskólakennarar teldu vísindin áþekkust berjafötu til að tína í fróðleik. Aðrir notuðu þau eins og kastljós til að lýsa upp veruleikann. Þráinn hefði verið í síðarnefnda hópnum.

Hannes rifjaði upp tvær ritgerðir Þráins, sem vörpuðu nýju ljósi á íslenska hagsögu. Önnur var um ítöluna og birtist í International Review of Law and Economics árið 1992. Landnámsmenn komu víðast að djúpum dölum, sem auðvelt var að skipta í jarðir. En dalirnir voru umkringdir fjöllum, sem nýta þurfti til beitar á sumrin, og það urðu þeir að gera saman. Þau beitarlönd voru afrétt, ekki einkaeign. Þá gátu einstakir bændur freistast til að reka of marga sauði á fjall, því að ávinningur af viðbótarsauðunum rann óskiptur til þeirra, en saman báru þeir kostnaðinn. Þannig varð til hætta á ofnýtingu, og hefur hún verið kölluð „samnýtingarbölið“ (the tragedy of the commons). Fornmenn kunnu þó ráð við því. Það var, að hver bóndi fékk að reka á fjall fastan fjölda sauða, „telja í“ afréttina. Fornmenn vissu líka, hvaða heildarfjöldi sauða væri hagkvæmastur. Það var við þau mörk, að þeir sneru sem feitastir niður á haustin, eins og kveðið var á um í Grágás.

Hin ritgerð Þráins, sem birtist í Journal of Economic Behavior & Organisation árið 1996, var um þá þversögn, að þjóðin svalt löngum, þótt auðug fiskimið væru undan landi. Skýringin var, að Íslendingar játuðust undir yfirráð Noregskonungs (og síðar Danakonungs) árið 1262, en konungur gerði bandalag við landeigendastéttina um að kæfa sjávarútveg í fæðingu. Þetta var gert með banni við vetursetu útlendinga, kröfu um, að allir yrðu að vera heimilisfastir á einhverju bændabýli (vistarbandið), og opinberum verðskrám, þar sem fiskverð var sett langt undir heimsmarkaðsverði. Þráinn spurði: Hvað gekk konungi til að halda þegnum sínum föstum í fátækt? Svarið var, að hann hafði séð á fimmtándu og sextándu öld hættuna af því, að landið gengi undan honum, væri útlendingum leyft að veiða hér og versla. Hann kaus því lægri tekjur og meira öryggi sjálfs sín, og landeigendastéttin (sem var aðeins lítið brot bænda, sem flestir voru leiguliðar) studdi hann, því að hún vildi halda í ódýrt vinnuafl, sem ella hefði leitað í sjávarsíðuna.

Hannes benti á, að á ofanverðri átjándu öld varð þetta kerfi gjaldþrota. Landeigendastéttin missti tökin, konungur seldi jarðir sínar og biskupsstólanna í sögulegustu einkavæðingu Íslandssögunnar, flestir bændur urðu sjálfseignarbændur, verslunareinokuninni var létt af og vistarbandið afnumið. Með öflugum sjávarútvegi mynduðust forsendur fyrir sjálfstæði. Eftir að Íslendingum tókst í fjórum þorskastríðum að reka útlendinga út af Íslandsmiðum, reis kerfi, sem reyndist í senn sjálfbært og arðbært, kvótakerfið, eins og Þráinn skýrði vel í bók sinni, Háskalegum hagkerfum, árið 2007. Flutti hann einnig fróðlegan fyrirlestur á ráðstefnu um kvótakerfið í Háskóla Íslands í október 2012, þegar uppi voru raddir um að feta í fótspor konunga og taka sjávarútveginn aftur kverkataki.

Hannes skrifaði einnig um Þráin í hinum fasta dálki sínum í nettímaritinu The Conservative. Jón Óttar Ragnarsson athafnamaður minntist Þráins á Facebook 26. júní 2026: „Einn eftirminnilegasti karakterinn í upphaflega Eimreiðarhópnum var snillingurinn Þráinn Eggertsson, hagfræðiprófessor. Fáir gáfu meira af sér í þessum félagsskap sem við Magnús Gunnarsson kölluðum saman í byrjun áttunda áratugarins til að vera hugmyndabrunnur fyrir borgaralega frjálslynd öfl á Íslandi. Fyrir utan að vera brilljant hagfræðingur og frábær penni, var Þráinn einn skemmtilegasti meðlimur í þessari frábæru sveit sem hittist reglulega í hádeginu í turnherberginu á Borginni.“ Magnús Gunnarsson athafnamaður skrifaði í minningargrein um Þráin í Morgunblaðinu sama dag, 29. júní 2026: „Það var fyrir rúmum 50 árum að Þráinn Eggertsson kom til liðs við hópinn, sem stóð að útgáfu Eimreiðarinnar. Þráinn tók strax virkan þátt í þeirri líflegu umræðu, sem þar átti sér stað um lífið og tilveruna. Hann var hæglátur, en með eindæmum rökfastur. Það sakaði ekki að hann var góður sögumaður og fylgdi oft rökum sínum eftir með léttum og skemmtilegum dæmum.“ Ragnar Árnason, prófessor emeritus í hagfræði, skrifaði sama dag: „Þráinn var einstaklega viðkunnanlegur maður. Hann hafði mikla persónutöfra og samræðuhæfileika og var ávallt fyndinn og skemmtilegur. Samt var hann hógvær og lítt fyrir að trana sér fram. Með rannsóknum sínum jók hann getu okkar til að takast á við vandamál samfélagsins. Með lífi sínu auðgaði hann tilveru okkar allra.“

Hannes: Vinir allra, þegnar einskis
Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, var í viðtali 4. júní 2026 hjá hlaðvarpinu Þjóðólfi, sem Gústaf Adolf Skúlason heldur úti. Þar fór hann stuttlega yfir kosti og galla Evrópusambandsins. Hann hélt því fram, að Íslendingar ættu að vera vinir granna sinna, Bandaríkjanna annars vegar og Evrópuríkjanna hins vegar, en þegnar hvorugs. Utanríkisstefna Íslands ætti í sem fæstum orðum að vera að selja fisk og tryggja varnir, en hafa að öðru leyti hægt um sig. Kostnaðurinn af aðild að Evrópusambandinu yrði mikill, en ávinningur óljós. Ekki væri um það deilt, að Ísland yrði að afsala sér löggjafarvaldi til ESB, missti yfirráðin yfir sjávarútvegi og landbúnaði og yrði að greiða miklu meira til sambandsins en það fengi. Reynsla Breta og Íra sýndi, að ESB stæði ekki við loforð sín í sjávarútvegsmálum.

Aðalfundur Almenna bókafélagsins 2026
Almenna bókafélagið hélt aðalfund sinn og árshátíð 30. maí 2026, en um þau mánaðamót fluttist félagið af Fákafeni 11 í nýjar og stærri bækistöðvar að Skeifunni 8, þar sem bókabirgðir þess eru einnig geymdar. AB var stofnað 17. júní 1955 til að halda uppi merki þjóðlegrar, frjálslyndrar lýðræðisstefnu gegn alræðisstefnunni, nasisma og kommúnisma, sem starfar undir ýmsum nöfnum og í ýmsum gervum.

Meðal annars hefur Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, ritstýrt endurútgáfu ýmissa bóka úr kalda stríðinu, sem eru um leið gefnar út á netinu (Google Books) og sumar sem hljóðbækur: Úr álögum eftir Jan Valtin (Richard Krebs), Ég kaus frelsið eftir Víktor Kravtsjenko, Konur í þrælakistum Stalíns eftir Aino Kuusinen og Elinor Lipper, Greinar um kommúnisma eftir Bertrand Russell, Örlaganótt yfir Eystrasaltslöndum eftir Ants Oras, Eistland: Smáþjóð undir oki erlends valds eftir Andres Küng, Ráðstjórnarríkin: Goðsagnir og veruleiki eftir Arthur Koestler, Nytsamur sakleysingi eftir Otto Larsen, Þjónusta, þrælkun, flótti eftir Aatami Kuortti, Framtíð smáþjóðanna: Erindi á Íslandi og öðrum Norðurlöndum eftir Arnulf Øverland, Bóndinn — El campesino: Líf og dauði í Ráðstjórnarríkjunum eftir Valentín González og Til varnar vestrænni menningu: Ræður sex rithöfunda eftir Tómas Guðmundsson, Gunnar Gunnarsson, Guðmund G. Hagalín, Kristmann Guðmundsson, séra Sigurð Einarsson í Holti og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Ollu margar þessar greinar, ræður og bækur hörðum deilum, á meðan kommúnisminn átti enn á Íslandi herskáa talsmenn á launum.

Enn fremur hefur Jónas Sigurgeirsson sagnfræðingur haft umsjón með röð bóka um bankahrunið og eftirköst þess: Búsáhaldabyltingin: sjálfsprottin eða skipulögð? eftir Stefán Gunnar Sveinsson sagnfræðing, Andersen-skjölin: rannsóknir eða ofsóknir? eftir Eggert Skúlason, fyrrverandi fréttastjóra, Seðlabankinn gegn Samherja: Eftirlit eða eftirför? eftir Björn Jón Bragason lögfræðing og Icesave-samningarnir: Afleikur aldarinnar? eftir Sigurð Má Jónsson blaðamann. Þessar bækur hafa selst vel og mælst vel fyrir, þótt í þeim þáttum Ríkisútvarpsins, sem kynna sambærileg verk, Silfrinu og Kiljunni, sé látið eins og þær séu ekki til.

Framkvæmdastjóri AB er Jónas Sigurgeirsson sagnfræðingur, og flutti hann á aðalfundinum skýrslu um starfsemina, sem gekk vel árið 2025. Var síðan gengið til kvöldverðar á veitingahúsinu Tides. Frá v.: Sigríður Snævarr, Ármann Þorvaldsson, Karítas Kvaran, Kjartan Gunnarsson, Hannes H. Gissurarson, Baldur Guðlaugsson, Jónas Sigurgeirsson og Rósa  Guðbjartsdóttir.

Fórnarlömb, böðlar, samverkamenn og vitorðsmenn
Dr. Marek Mutor, forseti Evrópuvettvangsins.

Hvernig á að minnast fórnarlamba alræðisstefnunnar, svo að sögulaus æskan skilji? Um þetta var rætt á ráðstefnu Evrópuvettvangs minningar og samvisku, sem dr. Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus, sótti í Katowice í suðurhluta Póllands 25.–27. maí 2026. Svörin voru hefðbundin: vitnisburður fórnarlamba, kennslubækur í sögu, netmiðlar, söfn, minnismerki. Gallinn er þó sá, eins og Hannes sagði í tímaritsgrein um ráðstefnuna, að tölum blæðir ekki. Nasistar myrtu sex milljónir gyðinga. Um eða yfir eitt hundrað milljónir manna dóu af völdum kommúnismans. Slíkar tölur verða ekki raunverulegar, fyrr en heyrist í nafngreindum fórnarlömbum. Þeim blæðir. Einn ráðstefnugesturinn, Kordian Borejko, hélt áhrifamikla ræðu. Hann hafði verið fluttur hvítvoðungur með fjölskyldu sinni frá Póllandi til Kasakstan árið 1940, en Stalín réðst að austan á Pólland 17. september 1939, röskum tveimur vikum eftir að Hitler réðst á landið að vestan.

Halldór Kiljan Laxness varði innrás Stalíns í Pólland svofelldum orðum í blaðagrein 27. september 1939: „fimtán miljónir manna í miðaldalegu lénstímaríki, sem frægt var fyrir mestu bændaörbirgð á Vesturlöndum, hefur árekstralítið og án verulegra blóðsúthellínga hoppað inn í ráðstjórnarskipulag verkamanna og bænda.“ Sannleikurinn var allur annar. Ráðstjórnin rússneska myrti ekki aðeins 22 þúsund pólska liðsforingja strax eftir innrásina, heldur flutti líka 1,7 milljón Pólverja nauðungarflutningum austur til Síberíu og Kasakstan. Munurinn á hernámi vestur- og austurhluta Póllands var, að nasistarnir myrtu alla þá gyðinga, sem þeir náðu til, en kommúnistar myrtu alla þá, sem þeir töldu hafa verið í valdastétt landsins. En ekki er að furða, segir Hannes, að Laxness endurprentaði ekki þessa grein í bókum sínum.

Á ráðstefnunni í Katowice var rætt um muninn á böðlum, samverkamönnum og vitorðsmönnum. Laxness var til dæmis vitorðsmaður böðlanna, ekki samverkamaður. Á ráðstefnunni rifjaði Antoine Arjakovsky upp, að franska lögreglan tók þátt í fjöldahandtökum gyðinga í París 16.–17. júlí 1942, en Hannes hefur skrifað um þann viðburð í þætti af Henny Goldstein, sem hraktist til Íslands undan nasistum. Fyrrverandi eiginmaður hennar var einn hinna handteknu, og var hann myrtur í Auschwitz. Franskir lögreglumenn voru samverkamenn nasistanna. François Mitterand fékkst ekki til að biðja afsökunar á framferði þeirra, en það gerði loks Jacques Chirac.

Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki?
Rannsóknastjóri RNH, Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði,  stjórnaði málstofu, sem RSE í Reykjavík og Austrian Economics Center í Vínarborg stóðu saman að í Reykjavík 13. maí 2026. Var hún þáttur í fundaröð Austrian Economics Center, The Free Market Road Show. Yfirskriftin var: „Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki?“ Fjórir erlendir sérfræðingar töluðu, en Erna Bjarnadóttir hagfræðingur mælti lokaorð.

Max Rangeley, forstöðumaður Cobden Centre í Lundúnum, velti því fyrir sér á málstofunni, hvort vestrænni menningu væri að hnigna. Þótt margt hefði verið skapað og smíðað frumlegt síðustu fimmtíu ár, hefðu tækninýjungar gerbreytt heiminum árin 1870–1920. Húsagerðarlist hefði farið aftur. (Þetta kallaði Jónas frá Hriflu kassastílinn.) Og hver gæti nefnt einhverja höfunda frá árunum 1970–2020, sem stæðu jafnfætis Goethe, Schiller, Tolstoj og Dostojevskíj? Rangeley sagði, að eina ráðið gegn stöðnun eða afturför í efnahagsmálum væri opið hagkerfi, frjáls viðskipti, nýsköpun.

Dr. Daniel Mitchell hagfræðingur, sem starfað hefur hjá mörgum bandarískum hugveitum, varaði Íslendinga við að ganga í Evrópusambandið. Einföld kostnaðar- og nytjagreining sýndi, að þeir myndu tapa á því. Hlutur ESB í heimsframleiðslunni hefði snarminnkað síðustu áratugi, miklu meira en Bandaríkjanna. Og ESB stæði frammi fyrir stórkostlegu óleystu verkefni, því að þeim hefði fjölgað, sem tækju lífeyri, en þeim fækkað, sem ynnu og greiddu skatta. Lífeyrissjóðir í Evrópu væru fæstir eins og íslensku lífeyrissjóðirnir, að menn söfnuðu inneign, heldur væru þeir fjármagnaðir af ríkissjóði hvers lands.

Prófessor Sasa Randjelovic frá Belgrad-háskóla kynnti rannsókn, sem hann hefði gert á 25 ríkjum, sem búið hefðu við sósíalisma, en tekið upp vestræna stjórnarhætti. Þeim hefði vegnað mjög misjafnlega. sumum vel. Hvað skýrði velgengni þeirra? Væri það heppni eða skynsamleg stefna? Svarið væri, að skynsamleg stefna væri langmikilvægust, þótt heppni skipti líka máli (auðlindir og þróun eftirspurnar). Hann bar síðan Ísland saman við ESB ríkin í fjórum þáttum: skattheimtu, festu í ríkisfjármálum, opinberum skuldum og góðu stofnanaumhverfi, og Ísland var betra í öllum þessum þáttum.

Dr. Anton Bendarzsevszkij, forstöðumaður Oeconomicus rannsóknarstofnunarinnar í Búdapest, ræddi þá spennu, sem væri milli opins hagkerfis og öryggissjónarmiða, ekki síst eftir að hægt hefði á hnattvæðingunni eða hún stöðvast. Það skipulag alþjóðamála, sem hvílt hefði á vilja Bandaríkjanna til að verja Evrópu, væri ef til vill að falla. Hugsanlega væri heimurinn að skiptast í tvö eða þrjú veldi, áhrifasvæði Bandaríkjanna, Kína og Evrópusambandsins. Nú væru miklir óvissutímar. En mikilvægt væri að styðja og treysta Atlantshafsbandalagið, og yrðu Evrópuríkin að leggja sitt af mörkum til þess.

Á meðal áheyrenda voru Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, frumkvöðlarnir og fjárfestarnir Magnús Gunnarsson, Kjartan Gunnarsson og Frosti Sigurjónsson, prófessorar emeriti Ragnar Árnason og Þór Whitehead, og Birgir Ármannsson, fyrrverandi forseti Alþingis. Eftir málstofuna sátu ræðumenn kvöldverð, sem RSE bauð til á Fiskfélaginu. Frá v.: Max Rangeley, Erna Bjarnadóttir, Hannes H. Gissurarson, Lukas Schweiger (sem aðstoðaði við skipulagninguna), Anton Bendarzsevszkij, Sasa Randjelovic og Daniel Mitchell.

Hannes: Öfugþróun Evrópusambandsins
Rannsóknastjóri RNH, Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, birti í Morgunblaðinu 13. maí kynningu á málstofu RSE, RNH og Austrian Economics Center þennan sama dag síðdegis um efnið: Evrópa: opinn markaður eða lokað ríki? Hann rakti, hvernig Evrópusambandið hefði verið stofnað til að stuðla að frjálsum viðskiptum milli Evrópuþjóða og friði, og hefði það tekist vonum framar. Adam Smith hefði bent á, að kostir verkaskiptingarinnar nýttust því betur sem markaðir væri stærri. En upp úr 1990 hefði verið stefnt að stjórnmálasamruna Evrópu frekar en efnahagssamruna. Ráðamenn í Brussel létu sig dreyma um öflugt sambandsríki, vopnum búið.

Hannes um Mill, Frelsið og Kúgun kvenna
Rannsóknarstjóri RNH, dr. Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í Háskóla Íslands, hafði framsögu um stjórnmálahugmyndir enska heimspekingsins Johns Stuarts Mills á bókarkvöldi í vinnustofu Kjarvals að kvöldi fimmtudagsins 7. maí 2026, sem er dánardagur Mills (1806–1873). Frelsið kom fyrst út árið 1859, en í íslenskri þýðingu árið 1886 og aftur í annarri þýðingu árið 1970. Kúgun kvenna kom fyrst út árið 1869, en í íslenskri þýðingu árið 1900 og aftur árið 1997. Fjölmenni var á bókarkvöldinu og fjörugar umræður, en þeim stjórnaði Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður og guðfræðingur.

Mill, Grundtvig og Tómas af Akvínas

John Stuart Mill

Hannes hélt því fram, að röksemdir Mills fyrir málfrelsi ættu enn við. Stundum hefði maður rétt fyrir sér, og væri þaggað niður í honum, missti mannkynið af dýrmætu sjónarmiði. Stundum væri skoðun hans aðeins hluti sannleikans, og mannkynið mætti ekki heldur missa af henni, svo að eðlilegt jafnvægi myndaðist, til dæmis milli íhaldssemi og frjálslyndis. Stundum væri skoðun hans beinlínis röng, til dæmis gyðingahatur nasista, en þá styrktist rétta skoðunin við að spreyta sig á að hrekja hana. Danska skáldið N. F. S. Grundtvig hefði orðað þetta eftirminnilega: Frelsið er Loka ekki síður en Þórs.

Hins vegar væri frelsisregla Mills hæpnari, en hún kveður á um það, að menn ættu að vera frjálsir að öllu því, sem skaðaði ekki aðra, jafnvel þótt það skaðaði þá sjálfa. Gallinn við regluna væri ekki, að hún væri óskýr eða óraunhæf, heldur að með henni væri ekki gerður greinarmunur á lofsverðum og lastsverðum verkum manna, heldur þau öll lögð að jöfnu, vændi og hjúkrun, klámmyndaleikur og kennsla, lífið gert að reikningsdæmi. Almenningsálitið mætti áskilja sér rétt til að líta vændi hornauga, en bera virðingu fyrir hjúkrun. Þess vegna taldi Hannes nálgun heilags Tómasar af Akvínas heppilegri. Hann hefði sagt, að við mennirnir væru allir syndarar, en sumar syndir okkur bitnuðu á öðrum, til dæmis barsmíðar og þjófnaður, og þeim ætti löggjafinn að reyna að halda niðri, en láta hinar syndirnar afskiptalausar. Með því væri viðurkennt, að þær væru syndir, eins og vera bæri, en löggjafinn þyldi mönnum þær engu að síður.

Fíknaefnaneysla og vændi

Hannes sneri sér síðan að ýmsum syndum, sem ættu ekki að varða við lög, þótt flokka ætti þær og fordæma sem syndir. Löggjafinn leyfði til dæmis tvö fíkniefni, sem væru stórhættuleg, níkotín og vínanda, og seldu þau raunar í ríkisbúðum. Það væri hrein hræsni að leyfa þau og selja, en banna jafnframt neyslu og sölu margra efna með vægari verkan. Sala þeirra færi þess vegna fram í undirheimum, og glæpahringir mynduðust. Flest fíkniefni hefðu róandi áhrif á neytendur þeirra. Best væri að gefa öll fíkniefni frjáls nema þau, sem yllu beinlínis ofbeldishegðun.

Hannes benti á, að vændi hefði breytt um eðli, svo að bann við því væri enn óeðlilegra en áður fyrr. Í fyrsta lagi ættu langflestir kost á kynmökum fyrir hjónaband, svo að vændiskonur sinntu ekki eðlilegri kynlífsþjónustu, heldur miklu frekar þeim afbrigðum kynlífs, sem menn væru feimnir við að biðja konur sínar eða unnustur um. Í öðru lagi hefði milliliðurinn á milli viðskiptavinarins og vændiskonunnar nær horfið fyrir tilverknað netsins. Nú seldu vændiskonur þjónustu sína beint og oft jafnvel án þess að snerta viðskiptavini sína, sem keyptu aðgang að þeim á netmiðlum, þar sem þeir horfðu á þær leika listir sínar, Hannes rakti dómsmál í Kanada, þar sem kona, sem rekið hafði vændishús, var ákærð, en konurnar í húsi hennar, klæddar leðurfatnaði frá hvirfli til ilja og í háum hælum og oddhvössum, höfðu eingöngu veitt þá þjónustu að niðurlægja viðskiptavinina með því að láta þá skríða um nakta á fjórum fætum og berja þá með svipum. Konan var sýknuð. Efaðist hann um, að þau algengu rök gegn vændi, að það fæli í sér niðurlægingu kvenna, ætti við um slíka þjónustu.

Hannes minntist á tvö önnur sjónarmið, sem veiktu niðurlægingarröksemdina fyrir banni við vændi. Annað væri, að stundum væri vændi stundað af mannúðarástæðum. Til væru þeir einstaklingar, sem ekki gætu útvegað sér rekkjunauta af eigin rammleik, til dæmis vegna offitu, fötlunar eða ýmissa útlitsgalla. Þeir yrðu annaðhvort að greiða fyrir kynlíf eða verða af því. Hitt sjónarmiðið væri, að ungir sveinar stunduðu einnig vændi, og seldu þeir þjónustu sína aðallega rosknum samkynhneigðum körlum, en stundum og þó miklu sjaldnar konum. Talið væri, að 20 af hundraði vændisfólks væru karlkyns.

Rómantísk einstaklingshyggja Mills

Hannes kvað frjálshyggju hafa mótast á sautjándu og átjándu öld, þegar John Locke setti fram sáttmála um takmörk valdsins, David Hume um réttlæti sem friðhelgi eignarréttar og frjálsa samninga og Adam Smith um viðskiptafrelsi. Í frönsku byltingunni hefði frjálshyggjan klofnað í íhaldssama frjálshyggju Edmunds Burkes og Alexis de Tocquevilles og róttæka frjálshyggju Tómasar Paines, og væri John Stuart Mill með sína rómantísku einstaklingshyggju arftaki hans, raunar líka John Maynard Keynes á tuttugustu öld, en kenning þeirra væri stundum kölluð félagsleg frjálshyggja. Það væri ef til vill of langt gengið að kalla Mill jafnaðarmann, en hann hefði hafnað eignarrétti á stórum jörðum og talið samvinnufélög vænlegan kost. Sósíalismi hefði þó að dómi hans þurft að vera sjálfvalinn, en ekki valdboðinn. Rómantísk einstaklingshyggja væri mörgu ungu fólki að skapi, en þegar það stofnaði fjölskyldur og eignaðist börn, tæki borgaralegt siðferði oftast við. Hinir sérstæðu menn, sem Mill lofsöng í Frelsinu, hefðu oft verið sérvitringar, sem vanrækt hefðu skyldur sínar við samborgarana, ekki snillingar, sem skapað hefðu ný verðmæti.

Kúgun karla?

Hannes vék líka að riti Mills um Kúgun kvenna. Hann væri sammála Mill um jafnan rétt kynjanna, og það væri líka rétt, að mannkynið hefði verið svipt kostinum á að njóta margvíslegra hæfileika kvenna, af því að þær hefðu áður fyrr verið neyddar til að þvo af börnum og matreiða allan daginn alla daga. En nú á dögum nytu þær fulls frelsis. Tilraunir öfgafemínista til að færa hugtakakerfi stéttabaráttu í anda Marx yfir á samskipti kynjanna, þar sem Feðraveldið ætti að gegna hlutverki kapítalismans, væru dæmdar til að mistakast. Sannleikurinn væri sá, að konum vegnaði almennt miklu betur í lífinu en körlum. Þær lifðu lengur, styttu sér síður aldur, leiddist síður út í ofdrykkju og aðra fíkniefnaneyslu, féllu síður í vinnuslysum eða stríðum og stunduðu síður glæpi. Líklega væri skýringin á þessu, að hæfileikar dreifðust miklu jafnar á konur en karla (bjölluboginn væri hærri og krappari), lægra hlutfall þeirra væri á jaðrinum, ýmist afglapar eða afburðamenn. Enn fremur mætti ætla, að börn veittu konum meiri lífsfyllingu en körlum. Nú á dögum væru skólar og störf að skólagöngu lokinni aðallega miðað við konur frekar en karla og óhamingjusamasti hópurinn væri jafnan einstæðir karlar. Þeir væru ef til vill ekki kúgaðir, en þeir væru afskiptir.

Hannes um norræna frumkvöðla frelsisins
Frjálshyggjustúdentar í Norðurálfu, Students for Liberty Europe, héldu árlegan aðalfund sinn í Madrid dagana 24.–26. apríl 2026. Þar var dr. Hannesi H. Gissurarsyni, prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og rannsóknastjóra RNH, boðið að kynna nýútkomna bók, sem hann ritstýrir, Conservative-Liberal Thought in the Nordic Countries: An Anthology, Frjálslynda íhaldsstefnu á Norðurlöndum: Sýnisbók. Gefur hugveitan New Direction í Brüssel bókina út, og er hún 468 blaðsíður, þar af 267 blaðsíðna formáli Hannesar.

Fyrstu kaflarnir í bókinni eru eftir íslensku sagnritarana Ara fróða og Snorra Sturluson. Í ræðu Þorgeirs Ljósvetningagoða á Alþingi árið 1000, sem Ari skráði, er minnt á þá sérstöðu Íslands, að þar ráði lögin frekar en mennirnir. Íslendingar hafi verið blessunarlega lausir við konunga, sem stundi hernað og leggi á skatta. Sama stef er í ræðu Einars Þveræings á Alþingi árið 1024, sem Snorri skráði. Í Heimskringlu Snorra er gengið að tveimur stjórnmálahugmyndum germanskra þjóða vísum: ríkisvaldi með samþykki (government by consent) og mótstöðurétti (right of rebellion). Þessar hugmyndir batt John Locke í kerfi með Ritgerð um ríkisvald árið 1689, en sú bók markar upphaf nútíma frjálshyggju, frjálslyndrar íhaldsstefnu.

Að sögn Hannesar voru þrír merkustu hugsuðir frjálslyndrar íhaldsstefnu á Norðurlöndum auk Snorra Finninn Anders Chydenius og Daninn N. F. S. Grundtvig. Chydenius setti árið 1765 fram sömu hugmyndir og Adam Smith ellefu árum síðar: að eins gróði þurfi ekki að vera annars tap og að mannlífið geti verið skipulegt án þess að vera skipulagt. Grundtvig lagði á nítjándu öld megináherslu á frjáls samtök fólksins, sem væru í senn bakhjarl þess og vettvangur, þar á meðal söfnuði samkvæmt vali, lýðháskóla og mjólkurbú, en líka einkafyrirtæki.

Á meðal áheyrenda á málstofunni var sendiherra Íslands á Spáni, Kristján Andri Stefánsson. Fjörugar umræður urðu á eftir ræðu Hannesar. Tékkneski stúdentinn Jonáš Kurus spurði, hver væru tengsl trúarbragða við hina norrænu frjálshyggju. Hannes svaraði, að rætur hennar teygðu sig langt aftur í heiðni, þegar germanskir ættbálkar hefðu stjórnað sér sjálfir, eins og Tacitus hefði lýst þegar á fyrstu öld e. Kr. Þótt í rómverskum rétti hefði verið til sú regla, að það, sem snerti alla, ættu allir að ákveða, Quod omnes tangit ab omnibus approbetur, hefði hún ekki verið eins almenn og hinar germönsku reglur um vald með samþykki og mótstöðurétt. Heilagur Tómas af Akvínas hefði þó viðurkennt mótstöðuréttinn, og óneitanlega veitti náttúruréttur kristninnar valdsmönnum nokkurt aðhald, en ekki eins mikið og sjálfstjórnarhugmyndir Germana.

Frá v.: Hannes, Breki, Schweiger og Tyler.

Þýski stúdentinn Anne Struffmann spurði, hvað aðrar þjóðir gætu lært af hinu norræna fordæmi. Hannes svaraði, að velgengni Norðurlanda hefði ekki verið vegna jafnaðarstefnu, heldur þrátt fyrir hana. Hin norræna frelsisarfleifð hefði verið nógu sterk til að standa af sér tvær árásir: frá konungum, sem töldu sig þiggja vald sitt af Guðs náð, og frá jafnaðarmönnum, sem töldu sig þiggja vald sitt samkvæmt vilja alþýðu. Velgengni Norðurlanda hvíldi á þremur stoðum: öflugu réttarríki, frjálsum alþjóðaviðskiptum og sterkum samhug, miklu trausti, rótgrónum borgaralegum dygðum. Slíkur samhugur yrði til á löngum tíma, við málamiðlanir og gagnkvæma aðlögun, en en ef til vill gætu nýfrjálsar þjóðir lært af Grundtvig, sem hefði talið nauðsynlegt að reka lýðháskóla til að kenna borgaralegar dygðir og þjóðlegan metnað.

Á ráðstefnunni töluðu meðal annarra Íslandsvinirnir David Friedman, Tom Palmer og Robert Tyler, sem hafa margoft komið til Íslands og eru vel kunnugir íslenskum fornbókmenntum. Hana sóttu einnig Lukas Schweiger, fyrrverandi formaður Students for Liberty Europe, sem búsettur er á Íslandi, og Breki Atlason, Íslandsfulltrúi samtakanna.

Frjálslynd íhaldsstefna á Norðurlöndum
Hinn 26. apríl 2026 kom út í Brüssel bók, sem dr. Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og rannsóknastjóri RNH,  ritstýrði, Frjálslynd íhaldsstefna á Norðurlöndum 946–1945: Sýnisbók, Conservative-Liberal Thought in the Nordic Countries 946–1945: An Anthology. Höfundarnir eru Ari fróði Þorgilsson, Snorri Sturluson, óþekktur höfundur Halldórs þáttar Snorrasonar, danski biskupinn Gunnar af Véborg, Eiríkur klippingur Danakonungur, sænski biskupinn Thomas Simonsson, sænski fjölfræðingurinn Olaus Petri, sænski presturinn Anders Chydenius, sænski sagnfræðiprófessorinn og skáldið Erik Gustaf Geijer, danski presturinn og skáldið Nikolai F. S. Grundtvig, sænski hagfræðiprófessorinn Gustav Cassel, danski hagfræðiprófessorinn Jens Warming, sænski hagfræðiprófessorinn Eli F. Heckscher, sænski lagaprófessorinn Nils Herlitz, danski lagaprófessorinn Poul Andersen og norski hagfræðingurinn Trygve Hoff.

Elsti viðburðurinn, sem greinir frá í bókinni, var árið 946, þegar Hákon Aðalsteinsfóstri skilaði bændum aftur öllu því landi, sem faðir hans, Haraldur hárfagri, hafði tekið af þeim og lofaði á þingum í Noregi að virða hin gömlu, góðu lög, sem rekja mátti að minnsta kosti þúsund ár aftur í aldir til sjálfstjórnar germanskra ættbálka, eins og rómverski sagnritarinn Tacitus lýsir. Yngsti viðburðurinn var árið 1945, þegar danskir kommúnistar vildu eftir hernám þýskra nasista banna andstæðingum lýðræðislegra gilda að tala, en Poul Andersen sagði þá og hafði eftir Grundtvig, að frelsið væri ekki síður fyrir Loka en Þór. Flestar greinarnar í þessari sýnisbók eru eftir Snorra, Chydenius og Grundtvig, en hún er alls 468 bls., þar af inngangur Hannesar 267 bls. Útgefandi er hugveitan New Direction í Brüssel.

Hannes: Hvað veldur vinnusemi Norðurlandaþjóða?
Syðsta fylkið í Brasilíu (sem Fjölnismenn kölluðu Rauðviðarland) er Rio Grande do Sul, sem á íslensku mætti kalla Miklafljót syðra. Höfuðborg fylkisins nefnist Porto Alegre, Fagrahöfn, og stendur við Suður-Atlantshaf. Í fylkinu hafa ungir framkvæmdamenn með sér öflug samtök, sem halda fjölmenna árlega ráðstefnu, Fórum da liberdade, Frelsisvettvanginn, þar sem fyrirlesarar úr öllum heimshornum tala um atvinnufrelsi og einkaframtak.

Dr. Hannesi H. Gissurarsyni, prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og rannsóknastjóra RNH, var boðið að kynna þar 9. apríl 2026 væntanlega bók, sem hann ritstýrir, Conservative-Liberal Thought in the Nordic Countries: An Anthology, Frjálslynda íhaldsstefnu á Norðurlöndum: Sýnisbók. Þar skrifar hann 267 blaðsíðna formála, en síðan taka við valdir kaflar úr ritum norrænna manna, allt frá íslensku sagnriturunum Ara fróða og Snorra Sturlusyni til norska hagfræðingsins Trygve Hoffs og danska lagaprófessorsins Pouls Andersens, sem uppi voru á tuttugustu öld. Hugveitan New Direction í Brüssel gefur bókina út, og er hún 468 blaðsíður.

Hannes sagði í spjalli sínu, að velgengni Norðurlanda væri ekki vegna jafnaðarstefnu, heldur þrátt fyrir hana. Helstu skýringar á henni væru þrjár: réttarríki, viðskiptafrelsi og samheldni(social cohesion). Hann varpaði líka fram tilgátu um, hvers vegna myndast hefði á Norðurlöndum öflug vinnumenning (þótt ef til vill sé hún nú að þoka fyrir bótabetli). Hún er í fæstum orðum, að Norðurlandabúar hefðu árþúsundum saman orðið að bregðast við mögrum vetrum með því að leggja sjálfir hart að sér og safna birgðum. Þeir hefðu ekki getað tínt ávexti af trjám eins og suðrænar þjóðir.