Almenna bókafélagið hélt aðalfund sinn og árshátíð 30. maí 2026, en um þau mánaðamót fluttist félagið af Fákafeni 11 í nýjar og stærri bækistöðvar að Skeifunni 8, þar sem bókabirgðir þess eru einnig geymdar. AB var stofnað 17. júní 1955 til að halda uppi merki þjóðlegrar, frjálslyndrar lýðræðisstefnu gegn alræðisstefnunni, nasisma og kommúnisma, sem starfar undir ýmsum nöfnum og í ýmsum gervum.
Meðal annars hefur Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, ritstýrt endurútgáfu ýmissa bóka úr kalda stríðinu, sem eru um leið gefnar út á netinu (Google Books) og sumar sem hljóðbækur: Úr álögum eftir Jan Valtin (Richard Krebs), Ég kaus frelsið eftir Víktor Kravtsjenko, Konur í þrælakistum Stalíns eftir Aino Kuusinen og Elinor Lipper, Greinar um kommúnisma eftir Bertrand Russell, Örlaganótt yfir Eystrasaltslöndum eftir Ants Oras, Eistland: Smáþjóð undir oki erlends valds eftir Andres Küng, Ráðstjórnarríkin: Goðsagnir og veruleiki eftir Arthur Koestler, Nytsamur sakleysingi eftir Otto Larsen, Þjónusta, þrælkun, flótti eftir Aatami Kuortti, Framtíð smáþjóðanna: Erindi á Íslandi og öðrum Norðurlöndum eftir Arnulf Øverland, Bóndinn — El campesino: Líf og dauði í Ráðstjórnarríkjunum eftir Valentín González og Til varnar vestrænni menningu: Ræður sex rithöfunda eftir Tómas Guðmundsson, Gunnar Gunnarsson, Guðmund G. Hagalín, Kristmann Guðmundsson, séra Sigurð Einarsson í Holti og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Ollu margar þessar greinar, ræður og bækur hörðum deilum, á meðan kommúnisminn átti enn á Íslandi herskáa talsmenn á launum.
Enn fremur hefur Jónas Sigurgeirsson sagnfræðingur haft umsjón með röð bóka um bankahrunið og eftirköst þess: Búsáhaldabyltingin: sjálfsprottin eða skipulögð? eftir Stefán Gunnar Sveinsson sagnfræðing, Andersen-skjölin: rannsóknir eða ofsóknir? eftir Eggert Skúlason, fyrrverandi fréttastjóra, Seðlabankinn gegn Samherja: Eftirlit eða eftirför? eftir Björn Jón Bragason lögfræðing og Icesave-samningarnir: Afleikur aldarinnar? eftir Sigurð Má Jónsson blaðamann. Þessar bækur hafa selst vel og mælst vel fyrir, þótt í þeim þáttum Ríkisútvarpsins, sem kynna sambærileg verk, Silfrinu og Kiljunni, sé látið eins og þær séu ekki til.
Framkvæmdastjóri AB er Jónas Sigurgeirsson sagnfræðingur, og flutti hann á aðalfundinum skýrslu um starfsemina, sem gekk vel árið 2025. Var síðan gengið til kvöldverðar á veitingahúsinu Tides. Frá v.: Sigríður Snævarr, Ármann Þorvaldsson, Karítas Kvaran, Kjartan Gunnarsson, Hannes H. Gissurarson, Baldur Guðlaugsson, Jónas Sigurgeirsson og Rósa Guðbjartsdóttir.

