Hannes: Öfugþróun Evrópusambandsins

Rannsóknastjóri RNH, Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, birti í Morgunblaðinu 13. maí kynningu á málstofu RSE, RNH og Austrian Economics Center þennan sama dag síðdegis um efnið: Evrópa: opinn markaður eða lokað ríki? Hann rakti, hvernig Evrópusambandið hefði verið stofnað til að stuðla að frjálsum viðskiptum milli Evrópuþjóða og friði, og hefði það tekist vonum framar. Adam Smith hefði bent á, að kostir verkaskiptingarinnar nýttust því betur sem markaðir væri stærri. En upp úr 1990 hefði verið stefnt að stjórnmálasamruna Evrópu frekar en efnahagssamruna. Ráðamenn í Brussel létu sig dreyma um öflugt sambandsríki, vopnum búið.

Comments are closed.