Frjálslynd íhaldsstefna á Norðurlöndum

Í apríl 2026 kom út í Brüssel bók, sem dr. Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og rannsóknastjóri RNH,  ritstýrði, Frjálslynd íhaldsstefna á Norðurlöndum 946–1945: Sýnisbók, Conservative-Liberal Thought in the Nordic Countries 946–1945: An Anthology. Höfundarnir eru Ari fróði Þorgilsson, Snorri Sturluson, óþekktur höfundur Halldórs þáttar Snorrasonar, danski biskupinn Gunnar af Véborg, Eiríkur klippingur Danakonungur, sænski biskupinn Thomas Simonsson, sænski fjölfræðingurinn Olaus Petri, sænski presturinn Anders Chydenius, sænski sagnfræðiprófessorinn og skáldið Erik Gustaf Geijer, danski presturinn og skáldið Nikolai F. S. Grundtvig, sænski hagfræðiprófessorinn Gustav Cassel, danski hagfræðiprófessorinn Jens Warming, sænski hagfræðiprófessorinn Eli F. Heckscher, sænski lagaprófessorinn Nils Herlitz, danski lagaprófessorinn Poul Andersen og norski hagfræðingurinn Trygve Hoff.

Elsti viðburðurinn, sem greinir frá í bókinni, var árið 946, þegar Hákon Aðalsteinsfóstri skilaði bændum aftur öllu því landi, sem faðir hans, Haraldur hárfagri, hafði tekið af þeim og lofaði á þingum í Noregi að virða hin gömlu, góðu lög, sem rekja mátti að minnsta kosti þúsund ár aftur í aldir til sjálfstjórnar germanskra ættbálka, eins og rómverski sagnritarinn Tacitus lýsir. Yngsti viðburðurinn var árið 1945, þegar danskir kommúnistar vildu eftir hernám þýskra nasista banna andstæðingum lýðræðislegra gilda að tala, en Poul Andersen sagði þá og hafði eftir Grundtvig, að frelsið væri ekki síður fyrir Loka en Þór. Flestar greinarnar í þessari sýnisbók eru eftir Snorra, Chydenius og Grundtvig, en hún er alls 468 bls., þar af inngangur Hannesar 267 bls. Útgefandi er hugveitan New Direction í Brüssel.

Comments are closed.