Hvernig á að minnast fórnarlamba alræðisstefnunnar, svo að sögulaus æskan skilji? Um þetta var rætt á ráðstefnu Evrópuvettvangs minningar og samvisku, sem dr. Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus, sótti í Katowice í suðurhluta Póllands 25.–27. maí 2026. Svörin voru hefðbundin: vitnisburður fórnarlamba, kennslubækur í sögu, netmiðlar, söfn, minnismerki. Gallinn er þó sá, eins og Hannes sagði í tímaritsgrein um ráðstefnuna, að tölum blæðir ekki. Nasistar myrtu sex milljónir gyðinga. Um eða yfir eitt hundrað milljónir manna dóu af völdum kommúnismans. Slíkar tölur verða ekki raunverulegar, fyrr en heyrist í nafngreindum fórnarlömbum. Þeim blæðir. Einn ráðstefnugesturinn, Kordian Borejko, hélt áhrifamikla ræðu. Hann hafði verið fluttur hvítvoðungur með fjölskyldu sinni frá Póllandi til Kasakstan árið 1940, en Stalín réðst að austan á Pólland 17. september 1939, röskum tveimur vikum eftir að Hitler réðst á landið að vestan.
Halldór Kiljan Laxness varði innrás Stalíns í Pólland svofelldum orðum í blaðagrein 27. september 1939: „fimtán miljónir manna í miðaldalegu lénstímaríki, sem frægt var fyrir mestu bændaörbirgð á Vesturlöndum, hefur árekstralítið og án verulegra blóðsúthellínga hoppað inn í ráðstjórnarskipulag verkamanna og bænda.“ Sannleikurinn var allur annar. Ráðstjórnin rússneska myrti ekki aðeins 22 þúsund pólska liðsforingja strax eftir innrásina, heldur flutti líka 1,7 milljón Pólverja nauðungarflutningum austur til Síberíu og Kasakstan. Munurinn á hernámi vestur- og austurhluta Póllands var, að nasistarnir myrtu alla þá gyðinga, sem þeir náðu til, en kommúnistar myrtu alla þá, sem þeir töldu hafa verið í valdastétt landsins. En ekki er að furða, segir Hannes, að Laxness endurprentaði ekki þessa grein í bókum sínum.
Á ráðstefnunni var rætt um muninn á böðlum, samverkamönnum og vitorðsmönnum. Laxness var til dæmis vitorðsmaður böðlanna, ekki samverkamaður. Á ráðstefnunni rifjaði Antoine Arjakovsky upp, að franska lögreglan tók þátt í fjöldahandtökum gyðinga í París 16.–17. júlí 1942, en Hannes hefur skrifað um þann viðburð í þætti af Henny Goldstein, sem hraktist til Íslands undan nasistum. Fyrrverandi eiginmaður hennar var einn hinna handteknu, og var hann myrtur í Auschwitz.

