Hannes: Vinir allra, þegnar einskis

Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, var í viðtali 4. júní 2026 hjá hlaðvarpinu Þjóðólfi, sem Gústaf Adolf Skúlason heldur úti. Þar fór hann stuttlega yfir kosti og galla Evrópusambandsins. Hann hélt því fram, að Íslendingar ættu að vera vinir granna sinna, Bandaríkjanna annars vegar og Evrópuríkjanna hins vegar, en þegnar hvorugs. Utanríkisstefna Íslands ætti í sem fæstum orðum að vera að selja fisk og tryggja varnir, en hafa að öðru leyti hægt um sig. Kostnaðurinn af aðild að Evrópusambandinu yrði mikill, en ávinningur óljós. Ekki væri um það deilt, að Ísland yrði að afsala sér löggjafarvaldi til ESB, missti yfirráðin yfir sjávarútvegi og landbúnaði og yrði að greiða miklu meira til sambandsins en það fengi. Reynsla Breta og Íra sýndi, að ESB stæði ekki við loforð sín í sjávarútvegsmálum. 

Comments are closed.