Monthly Archives: October 2017

Norberg: Margar ástæður til bjartsýni

Margar ástæður eru til þess að taka framtíðinni fagnandi, sagði sænski sagnfræðingurinn og sjónvarpsmaðurinn Johan Norberg á fundi Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála, Almenna bókafélagsins og RNH í Háskóla Íslands 23. október. Þar kynnti Norberg bók sína, Framfarir: Tíu ástæður til … Continue reading

Comments Off

Norberg bjartsýnn um framtíðina: Mánudag 23. október kl. 17

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands heldur í samstarfi við Almenna bókafélagið fund í stofu N-132 í Öskju, náttúruvísindahúsi Háskóla Íslands, mánudaginn 23. október kl. 17–18, sem RNH vill vekja athygli á. Frummælandi er hinn heimskunni sænski sagnfræðingur og … Continue reading

Comments Off

Hannes: Fimm ákvarðanir breyttu kreppu í hrun

Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið er fróðleg, en skýrir ekki að fullu bankahrunið. Skýring nefndarinnar er, að bankarnir hafi vaxið of hratt og orðið of stórir. En það er nauðsynlegt skilyrði fyrir hruni þeirra og ekki nægilegt, sagði Hannes H. … Continue reading

Comments Off

Bankahrunið í sögulegu ljósi: Þriðjudag 17. október kl. 12

Prófessor Hannes H. Gissurarson, rannsóknastjóri RNH, flytur fyrirlestur um „Bankahrunið í sögulegu ljósi“ á hádegisfundi Sagnfræðingafélagsins í Þjóðminjasafninu 17. október kl. 12–13. Þar beinir Hannes sjónum að þeim lærdómum, sem Íslendingar geta dregið af bankahruninu 2008 um stöðu sína í … Continue reading

Comments Off

Fjölsótt og fróðleg málstofa um Þjóðveldið

Hvernig má lifa við lög án ríkisvalds? Prófessor David D. Friedman kvaðst hafa velt þessu fyrir sér upp úr 1970, en þá áttað sig á, að það hafði þegar verið gert í Íslenska þjóðveldinu 930–1262. Á fjölsóttri málstofu, sem hagfræðideild, … Continue reading

Comments Off

Markús: Þriðjudag 3. október kl. 12:05

RNH vekur athygli á, að þriðjudaginn 3. október flytur Markús Þ. Þórhallsson erindið „Til varnar Íslandi. Saga InDefence hópsins 2008-2013“. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05 og fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Þetta er annar fyrirlestur þessa haustmisseris í röð fyrirlestra sem … Continue reading

Comments Off