Monthly Archives: June 2019

Bjørndal: Bláuggatúnfiskur kominn á Íslandsmið

Í viðtali við Morgunblaðið 19. júní 2019 lýsti Trond Bjørndal, prófessor í fiskihagfræði við Viðskiptaháskólann í Björgvin, vandkvæðunum á því að stjórna veiðum á einum verðmætasta fiski í heimi, bláuggatúnfisknum. Hann er uppsjávarfiskur, sem fer um öll heimsins höf, inn … Continue reading

Comments Off

Wilen: Stjórn strandveiða sé sjálfsprottin

Strandveiðar, oft með handfærum, eru mikilvægar, en erfiðlegar hefur gengið að stjórna þeim en úthafsveiðum og þess vegna er enn mikil sóun í þeim, segir James Wilen, prófessor emeritus í fiskihagfræði í Kaliforníuháskóla í Davis, í viðtali við Morgunblaðið 18. … Continue reading

Comments Off

Munro: Samstarf útgerðarmanna mikilvægt

Í viðtali við Morgunblaðið 17. júní benti Gordon Munro, prófessor emeritus í fiskihagfræði við Háskólann í Bresku Kólumbíu, á, að mikilvægt væri, að útgerðarmenn næðu samkomulagi sín í milli um skynsamlega nýtingu fiskistofna. Rakti hann þróunina í Bresku Kólumbíu, sem … Continue reading

Comments Off

Stórfróðleg ráðstefna um fiskihagfræði

Fjórir heimsþekktir fiskihagfræðingar töluðu á alþjóðlegri ráðstefnu Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, RNH og annarra aðila til heiðurs Ragnari Árnasyni 14. júní 2019 um „Úthafsveiðar heims: Í áttina að sjálfbæru og arðbæru kerfi“. Þeir voru prófessorarnir Trond Bjorndal, Rögnvaldur Hannesson, Gordon Munro … Continue reading

Comments Off

Ráðstefna 14. júní til heiðurs Ragnari

Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, RNH og nokkrir aðrir aðilar halda alþjóðlega ráðstefnu undir yfirskriftinni „Offshore Fisheries of the World: Towards a Sustainable and Profitable System“ til heiðurs Ragnari Árnasyni, prófessor í fiskihagfræði, sjötugum. Verður hún í hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 14. … Continue reading

Comments Off

Hannes gagnrýndi Rawls og Piketty

Rannsóknastjóri RNH, dr. Hannes H. Gissurarson prófessor, gagnrýndi kenningar Johns Rawls og Tómasar Pikettys í erindi á Frjálsa sumarskólanum, sem Samtök frjálslyndra framhaldsskólanema efndi til í Reykjavík 1. júní. Var erindið að mestu leyti sótt í skýrslu, sem Hannes hefur … Continue reading

Comments Off