Monthly Archives: November 2013

Jón Steinar: Veiðigjald ólögmætt

Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, hélt því fram á fjölmennum fundi Lögréttu, félags laganema í Háskólanum í Reykjavík, þriðjudaginn 29. október 2013, að þau veiðigjöld, sem hefðu verið sett á sjávarútveg á Íslandi, stæðust ekki stjórnarskrá og væru ólögmæt. Taldi … Continue reading

Comments Off

Hannes: Ísland úti í kuldanum

Prófessor Hannes H. Gissurarson hélt fyrirlestur um bankahrunið og kapítalismann á fjölmennum morgunverðarfundi hugveitunnar Timbro í Stokkhólmi þriðjudaginn 29. október 2013. Ásamt honum talaði þar Urban Bäckström, fyrrverandi seðlabankastjóri Svíþjóðar og nú framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í Svíþjóð. Hannes kvað orsakir … Continue reading

Comments Off

Hannes: Hlutskipti Eystrasaltsþjóða lítt þekkt

Prófessor Hannes H. Gissurarson flutti 25. október 2013 erindi um Eystrasaltsþjóðirnar í vitund Íslendinga á málstofu um hina alþjóðlegu vídd í Þjóðarspeglinum, þar sem kennarar á félagsvísindasviði Háskóla Íslands kynna rannsóknir sínar. Hann minnti á, að Ísland og Eystrasaltsþjóðirnar hefðu … Continue reading

Comments Off

Hannes H.: Erlendir áhrifaþættir bankahrunsins óskýrðir

Prófessor Hannes H. Gissurarson flutti 25. október 2013 erindi á málstofu um íslenska bankahrunið í Þjóðarspeglinum, þar sem kennarar á félagsvísindasviði Háskóla Íslands kynna rannsóknir sínar. Þar vísaði hann á bug þeim skýringum á bankahruninu, að regluverk á íslenskum fjármálamarkaði … Continue reading

Comments Off

Hannes um Kolkrabbann á Íslandi: 5. nóvember kl. 12

Hannes H. Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, heldur erindið „Réð Kolkrabbi atvinnulífi á Íslandi fram undir lok 20. aldar? Og hvað tók þá við?“ á málstofu Viðskiptafræðideildar þriðjudaginn 5. nóvember 2013 á Háskólatorgi, stofu HT-101, kl. 12–13. Þar mun Hannes ræða … Continue reading

Comments Off

Hættum að fóðra tröllið: Mánudag 4. nóvember 12–13

Ríkið er að taka á sig sífellt sterkari svip hvalsins Levjatans, sívaxandi trölls, sem gráðugt er í sjálfsaflafé borgaranna. Dr. Daniel Mitchell, aðalskattasérfræðingur Cato-stofnunarinnar í Washington-borg, ræðir, hvernig við getum hætt að fóðra tröllið í sameiginlegum fundi RNH og Samtaka … Continue reading

Comments Off