Kvótakerfi og veiðigjald: Mánudag 14. október 17–19

Árni Vilhjálmsson prófessor

Málþing í minningu Árna Vilhjálmssonar prófessors, sem lést 5. mars 2013, verður haldið í hátíðasal Háskóla Íslands 14. október 2013, kl. 17–19, og standa að því félagsvísindasvið Háskóla Íslands og RNH. Árni var virtur og vinsæll fræðimaður og kennari, en einnig dugmikill framkvæmdamaður, sem sat í stjórn fjölmargra atvinnufyrirtækja. Þar á meðal voru Flugleiðir, Kassagerðin, Ármannsfell, Nýherji, Hampiðjan, Verðbréfaþing og Venus. Árni rak ásamt félögum sínum eitt öflugasta útgerðarfyrirtæki landsins, Granda. Hann fæddist 11. maí 1932 og stundaði nám í fjármálafræðum í Harvard-háskóla og Oslóarháskóla. Með námi og að því loknu starfaði hann meðal annars hjá Alþjóðabankanum í Washington og í Framkvæmdabankanum og viðskiptaráðuneytinu, en varð 1961 prófessor í viðskiptadeild Háskóla Íslands. „Árni var frábær kennari, frjór í hugsun og áhugasamur um nemendur sína. Það var samdóma álit okkar nemendanna að í hópi þeirra kennara við viðskiptadeild Háskóla Íslands sem önnuðust kennslu í viðskiptagreinum bæri Árni af sakir traustrar fræðimennsku og djúps skilnings á atvinnulífinu,“ skrifaði Ragnar Árnason prófessor, formaður rannsóknarráðs RNH, við lát Árna.

Árni sat um árabil í bankaráði Landsbanka Íslands, sem er annar af tveimur bakhjörlum málþingsins. Á því talar kunnur sérfræðingur um auðlindanýtingu, Ralph Townsend, prófessor í Maine-háskóla og forseti hugvísindadeildar Winona State University í Minnesota, um kerfi varanlegra og framseljanlegra aflaheimilda í því skyni að tryggja hagkvæmar fiskveiðar. Townsend hefur birt fjölda ritgerða um auðlindanýtingu, þar á meðal í bókinni Evolving Property Rights in Marine Fisheries. Hann hefur verið Fulbright-kennari á Íslandi, aðalhagfræðingur sjávarútvegsráðuneytis Nýja Sjálands og forseti Fiskihagfræðingafélags Norður-Ameríku. Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor í Háskóla Íslands, ræðir um kröfuna um sérstaka skatta á sjávarútveg. Ragnar er höfundur fjölmargra fræðirita í fiskihagfræði. Dr. Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, ræðir um fiskveiðistefnu Evrópusambandsins, CFP, Common Fisheries Policy, reynslu og horfur. Gunnar var áður forstöðumaður fiskveiðasviðs OECD í París. Hannes H. Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor í Háskóla Íslands, ræðir um stjórnmál, siðferði og auðlindanýtingu. Hann skrifaði meðal annars bókina Overfishing: The Icelandic Solution. Fundarstjóri er Daði Már Kristófersson, forseti félagsvísindasviðs.

Við þetta tækifæri afhenda forráðamenn Hvals hf. Háskóla Íslands brjóstmynd af Árna, sem komið verður fyrir í húsi félagsvísindasviðs, Odda. Árni rak Hval ásamt félaga sínum, Kristjáni Loftssyni útgerðarmanni. Hvalur er annar af tveimur bakhjörlum málþingsins. Ekkja Árna, Ingibjörg Björnsdóttir, afhjúpar brjóstmyndina, sem Gerður Gunnarsdóttir myndhöggvari gerði. Málþingið er einnig þáttur í samstarfsverkefni RNH og AECR, Evrópusamtaka íhaldsmanna og umbótasinna, um „Evrópu, Ísland og framtíð kapítalismans“.

Comments are closed.