Sköpunargleði í stað sníkjulífs

Hannes H. Gissurarson prófessor greinir og gagnrýnir siðferðilega vörn Ayns Rands fyrir kapítalismanum í fyrirlestri fimmtudaginn 5. nóvember kl. 16.30 í Odda í Háskóla Íslands, stofu O-101. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Rand er áhrifamesti kvenheimspekingur allra tíma, og hafa bækur hennar selst í þrjátíu milljónum eintaka. Þrjár skáldsögur hennar hafa komið út á íslensku, Kíra Argúnova, Uppsprettan og Undirstaðan. Fyrirlesturinn er í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands. Hann er einnig liður í samstarfsverkefni RNH og AECR, Evrópusamtaka íhaldsmanna og umbótasinna, um „Evrópu, Ísland og framtíð kapítalismans“. Sjöfn Vilhelmsdóttir er fundarstjóri.

Hannes spyr: Hver er munurinn á sjálfselsku og ágirnd? Er samanburður Rands á afburðamönnum og afætum eðlilegur? Hvaða íslensku frumkvöðlar svara best til lýsingar Rands á skapandi einstaklingum? Þarf ást ætíð að vera verðskulduð, eins og Rand heldur fram? Er ekki til neitt, sem heitir mannleg samábyrgð? Hver er munurinn á málsvörn Rands fyrir kapítalismanum og hagfræðinganna Hayeks og Friedmans? Fléttuð eru inn í fyrirlesturinn örstutt brot úr leikinni heimildamynd um Rand, þar sem Helen Mirren er í hlutverki hennar, og kvikmynd eftir Uppsprettunni með Gary Cooper í aðalhlutverki.

Glærur Hannesar um Ayn Rand

Comments are closed.