Author Archives: HHG

Mitchell: Viðbótarskattar á ríkt fólk ná ekki tilgangi sínum

Dr. Daniel Mitchell, skattasérfræðingur Cato-stofnunarinnar í Washington-borg, telur, að viðbótarskattar á ríkt fólk nái ekki tilgangi sínum. Færði hann rök fyrir þessu í erindi á fundi Samtaka skattgreiðenda og RNH um skattamál 4. nóvember 2013. Mitchell benti þar á, að … Continue reading

Comments Off

Brook: Ekkert rangt við að elska sjálfan sig

Dr. Yaron Brook, forstöðumaður Aynd Rand-stofnunarinnar í Kaliforníu, fylgdi skáldsögu Ayns Rands, Kíru Argúnovu, sem Almenna bókafélagið gaf út 1. nóvember 2013, úr hlaði með erindi um sjálfselsku og kapítalisma í skáldskap Rands. Brook sagði, að í skáldsögum sínum drægi … Continue reading

Comments Off

Jón Steinar: Veiðigjald ólögmætt

Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, hélt því fram á fjölmennum fundi Lögréttu, félags laganema í Háskólanum í Reykjavík, þriðjudaginn 29. október 2013, að þau veiðigjöld, sem hefðu verið sett á sjávarútveg á Íslandi, stæðust ekki stjórnarskrá og væru ólögmæt. Taldi … Continue reading

Comments Off

Hannes: Ísland úti í kuldanum

Prófessor Hannes H. Gissurarson hélt fyrirlestur um bankahrunið og kapítalismann á fjölmennum morgunverðarfundi hugveitunnar Timbro í Stokkhólmi þriðjudaginn 29. október 2013. Ásamt honum talaði þar Urban Bäckström, fyrrverandi seðlabankastjóri Svíþjóðar og nú framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í Svíþjóð. Hannes kvað orsakir … Continue reading

Comments Off

Hannes: Hlutskipti Eystrasaltsþjóða lítt þekkt

Prófessor Hannes H. Gissurarson flutti 25. október 2013 erindi um Eystrasaltsþjóðirnar í vitund Íslendinga á málstofu um hina alþjóðlegu vídd í Þjóðarspeglinum, þar sem kennarar á félagsvísindasviði Háskóla Íslands kynna rannsóknir sínar. Hann minnti á, að Ísland og Eystrasaltsþjóðirnar hefðu … Continue reading

Comments Off

Hannes H.: Erlendir áhrifaþættir bankahrunsins óskýrðir

Prófessor Hannes H. Gissurarson flutti 25. október 2013 erindi á málstofu um íslenska bankahrunið í Þjóðarspeglinum, þar sem kennarar á félagsvísindasviði Háskóla Íslands kynna rannsóknir sínar. Þar vísaði hann á bug þeim skýringum á bankahruninu, að regluverk á íslenskum fjármálamarkaði … Continue reading

Comments Off