Author Archives: HHG

Nýtt fræðirit eftir Carl og Lauru Baudenbacher um Ísland og ESB

Almenna bókafélagið hefur gefið út bók eftir dr. Carl Baudenbacher og dr. Lauru M. Baudenbacher, og nefnist hún Iceland Before the EU Referendum. Báðir eru höfundarnir sérfræðingar í Evrópurétti, og hefur Carl verið gistiprófessor í Evrópurétti í Háskóla Íslands og heiðursgestur á … Continue reading

Comments Off

Baudenbacher: Ísland betur komið í EES en ESB

Einn fremsti sérfræðingur heims í Evrópurétti, dr. Carl Baudenbacher, hélt fyrirlestur um Ísland og ESB í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll mánudaginn 10. ágúst 2026. Fyrirlesturinn var á vegum Rannsóknarseturs um stjórnmál og efnahagsmál í Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, RNH og RSE, Rannsóknarmiðstöðvar … Continue reading

Comments Off

Hannes: Þeir björguðu Íslandi

Rannsóknastjóri RNH, Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands, birti opnugrein í Morgunblaðinu 6. ágúst 2026 í tilefni þess, að dr. Carl Baudenbacher var væntanlegur til landsins að halda fyrirlestur í Háskóla Íslands. Þar kvað hann Ísland … Continue reading

Comments Off

AB gefur út tvær bækur um Evrópumál

Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst 2026 um, hvort Ísland eigi að endurnýja umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu, hefur Almenna bókafélagið gefið út tvær bækur um málið. Önnur er eftir Ernu Bjarnadóttur hagfræðing og nefnist Afsal. Þar segir hún, að í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. … Continue reading

Comments Off

Þráinn Eggertsson látinn

Þráinn Eggertsson, prófessor emeritus í hagfræði, lést í Reykjavík 18. júní 2026 85 ára að aldri. Í minningargrein um hann í Morgunblaðinu 29. júní sagði Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, að sumir háskólakennarar teldu vísindin áþekkust berjafötu til … Continue reading

Comments Off

Hannes: Hvað hefði Jóni Sigurðssyni þótt?

Rannsóknastjóri RNH, Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands, svaraði Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi í DV 26. júní 2026, en Guðjón hafði haldið því fram í DV sama dag, að Jón Sigurðsson hefði sennilega viljað skoða aðild að ESB. … Continue reading

Comments Off