Bók Hannesar um bankahrunið 2008

Eftir að dr. Hannes H. Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, skilaði haustið 2018 skýrslu á ensku til fjármálaráðuneytisins um bankahrunið 2008, birti hann útdrátt á íslensku úr henni í fjórum greinum í Morgunblaðinu. Þær eru nú komnar út í 64 blaðsíðna bók, Bankahrunið 2008: Útdráttur úr skýrslu. Kaflarnir eru: Beiting hryðjuverkalaganna var Bretum til minnkunar; Íslendingum var neitað um aðstoð, sem aðrir fengu; Viðbrögð íslenskra stjórnvalda við bankahruninu voru skynsamleg; Framkoma sumra granna í bankahruninu var siðferðilega ámælisverð. Bókin er aðgengileg ókeypis á netinu. Þórarinn Þórarinsson tók viðtal við Hannes í Fréttablaðinu 27. janúar 2022, þar sem hann kvað ýmislegt nýtt hafa komið fram í skýrslu sinni, meðal annars að sennilega hefðu Gordon Brown og Alistair Darling verið að gæta stjórnmálahagsmuna sinna í Skotlandi með hörku sinni við Íslendinga og að breska fjármálaráðuneytið hefði ekki þurft að beita hryðjuverkalögum til að koma í veg fyrir fjármagnsflutninga frá Bretlandi til Íslands. Andrés Magnússon birti ritdóm um bókina í Morgunblaðinu 16. apríl 2022. „Hannes gerir góða grein fyrir hverjum og einum þætti í knöppu máli, skýru og skipulegu,“ segir Andrés.

Comments are closed.