Hannes: Snorri samtímamaður okkar

Daginn fyrir málstofu, sem Miðaldastofa Háskóla Íslands, Hið íslenska bókmenntafélag og RSE héldu 23. september 2025 um stjórnmálahugmyndir Snorra Sturlusonar, eins og prófessor Sigurður Líndal lýsir þeim í nýrri bók, birti rannsóknastjóri RNH, Hannes H. Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, grein í Morgunblaðinu um þær hugmyndir Snorra, sem enn væru í fullu gildi: vald háð samþykki, mótstöðurétt (sem nú væri rétturinn til að setja valdhafa af í frjálsum kosningum á nokkurra ára fresti, væri þess talin þörf), enga skatta án samþykkis og utanríkisstefnu, sem fæli í sér, að Íslendingar væru vinir erlendra höfðingja, en ekki þegnar þeirra.

 

Comments are closed.