Pardo: Allt andóf bannað á Kúbu

Pardo í Borgarbókasafninu.

Rithöfundurinn og skáldið Orlando Luis Pardo Lazo hélt fyrirlestur á vegum Pen klúbbsins íslenska og Borgarbókasafnsins laugardaginn 10. október og ræddi um mannréttindabrot á Kúbu, og var rithöfundurinn Sjón fundarstjóri. Eftir ofsóknir leynilögreglu Castros ákvað Pardo að flytjast til Bandaríkjanna. Hann kvaðst hissa á því, þegar menn héldu, að hann væri stuðningsmaður Lýðveldisflokksins bandaríska (Repúblikana) fyrir það eitt, að hann gagnrýndi stjórnarfar á Kúbu. Það einkenndist af ritskoðun, kúgun og einstefnu. Rithöfundar, sem leyfðu sér að gagnrýna stjórnvöld eða tala um önnur mál en opinberir aðilar hefðu sett á dagskrá, væru eltir uppi, hrelltir, fangelsaðir, oft pyndaðir og stundum líflátnir. Pardo kvaðst helst telja sig vinstri mann, en Vesturlandabúar mættu ekki loka augunum fyrir því, að á þessari suðrænu eyju væru íbúarnir kúgaðir.

Pardo brá upp glæru, þar sem sætaskipan á Alþingi Íslendinga var auðkennd með ólíkum litum á sætum ólíkra flokka, og annarri glæru með sætaskipan á þingi Kúbu, þar sem aðeins sætu fulltrúar eins flokks og öll sæti væru því eins á litinn. Pardo brá upp mörgum glærum með kúbverskum menntamönnum, sem hefðu verið ofsóttir, þar á meðal rithöfundinum Carlos Franqui, sem var fjarlægður af ljósmyndum, eftir að hann snerist gegn kommúnisma. Pardo sýndi einnig nokkur brot úr ræðum Castros, þar á meðal hinni alræmdu ræðu, sem hann hélt 13. mars 1963, þegar hann réðst á þröngar buxur, sem ungir, kúbverskir gagnbyltingarsinnar gengju í og væru kvenlegar. Þá lýsti Pardo því, sem kalla mætti þjóðflutninga frá Kúbu: Margir Kúbverjar hefðu „greitt atkvæði með árunum eða fótunum“ með því að flýja eða flytjast burt frá Kúbu. Taldi hann Raúl Castro, sem tekið hefði við völdum af Fidel, bróður sínum, ekki hafa beitt sér fyrir neinum raunverulegum eða mikilvægum umbótum í frjálsræðisátt. Líklegast væri, að sonur Raúls tæki við stjórnartaumunum að honum gengnum, og væri Kúba þá orðin erfðaveldi eins og Norður-Kórea.

Fjölmenni var á fundinum, en ekki var minnst nema lítillega á hinn mikla áhuga sumra Íslendinga á liðnum árum á því að styðja einræðisstjórn Castros á Kúbu. Magnús Kjartansson, ritstjóri Þjóðviljans, málgagns sósíalista, fór til Kúbu 1962, skrafaði við Che Guevara og hlustaði á Castro flytja langar ræður. Einn viðmælandi hans þá var Carlos Franqui, sem kom við sögu í fyrirlestri Pardos. Birti Magnús síðan ferðabókina Byltinguna á Kúbu og lofsöng Castro hástöfum. Nokkrir Íslendingar, þar á meðal Silja Aðalsteinsdóttir, um skeið ritstjóri Þjóðviljans, og Páll Halldórsson, sem lætur að sér kveða í kjarabaráttu opinberra starfsmanna, voru sjálfboðaliðar á sykurekrum Kúbu. Síðasta verk Alþýðubandalagsins haustið 1998, áður en flokkurinn var lagður niður og skipti sér á milli Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, var að taka boði kúbverska kommúnistaflokksins um ferð sérstakrar sendinefndar til Kúbu. Var hún undir forystu Svavars Gestssonar og Margrétar Frímannsdóttur, og reyndu þau að ná fundi Castros, sem hirti hins vegar ekki um að hitta þau. Stuðningur RNH við þennan fund er liður í samstarfsverkefni með AECR, Evrópusamtök íhaldsmanna og umbótasinna.

Comments are closed.