Author Archives: HHG

Hannes um bankahrunið: Stokkhólmi 29. október

Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor heldur erindi um bankahrunið íslenska á morgunverðarfundi, sem sænska hugveitan Timbro efnir til í Stokkhólmi þriðjudaginn 29. október. Fyrirlestur hans verður fluttur á ensku og nefnist „Why Was Iceland Left Out in the Cold?“ Hann er … Continue reading

Comments Off

Hannes um bankahrunið: Föstudag 25. október 9–10.45

Hannes H. Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, flytur erindi um skýringar á bankahruninu í Þjóðarspeglinum, sem félagsvísindasvið Háskóla Íslands heldur föstudaginn 25. október 2013, en þar kynna fræðimenn á sviðinu rannsóknir sínar. Málstofan með Hannesi verður í Háskólatorgi, stofu HT-101, kl. … Continue reading

Comments Off

Ragnar Árnason: Veiðigjald í sjávarútvegi stórskaðlegt

Ragnar Árnason, prófessor í fiskihagfræði í Háskóla Íslandi, gagnrýndi harðlega kröfuna um sérstakt veiðigjald eða auðlindaskatt í sjávarútvegi á alþjóðlegri ráðstefnu um kvótakerfi og veiðigjald, sem haldin var í hátíðasal Háskóla Íslands mánudaginn 14. október 2013. Hann kvað veiðigjaldskröfuna hvíla … Continue reading

Comments Off

O’Sullivan: Járnfrúin var heimssögulegur einstaklingur

Margrét Thatcher var ásamt Winston Churchill eini alþjóðlegi stjórnmálaleiðtoginn, sem kom frá Bretlandi á tuttugustu öld, sagði breski rithöfundurinn John O’Sullivan á fundi, sem Samband ungra sjálfstæðismanna hélt, en RNH studdi, 13. október 2013, á afmælisdegi Thatchers. Á sama hátt … Continue reading

Comments Off

Bankahrunið íslenska: Fámennt og áhrifalítið land fellt?

Á fjölsóttri alþjóðlegri ráðstefnu um bankahrunið íslenska  7. október 2013, réttum fimm árum síðar, lagði dr. Eamonn Butler frá Adam Smith-stofnuninni í Lundúnum áherslu á, að mistæk ríkisafskipti, ekki síst undirmálslánin í Bandaríkjunum og lin peningastefna bandaríska seðlabankans og hliðstæðra … Continue reading

Comments Off

Kvótakerfi og veiðigjald: Mánudag 14. október 17–19

Málþing í minningu Árna Vilhjálmssonar prófessors, sem lést 5. mars 2013, verður haldið í hátíðasal Háskóla Íslands 14. október 2013, kl. 17–19, og standa að því félagsvísindasvið Háskóla Íslands og RNH. Árni var virtur og vinsæll fræðimaður og kennari, en … Continue reading

Comments Off